Sveinn Eyþórsson

Sveinn Eythorsson

Ég er klassískur gítarleikari, kennari, útsetjari og stofnandi vefsíðunnar The Guitar School - Iceland.

Ég fæddist í Hafnarfirði árið 1964 og hóf nám í klassískum gítarleik sex ára gamall hjá föður mínum, Eyþóri Þorlákssyni, gítarleikara og kennara.

Sautján ára gamall fór ég til Spánar til tónlistarnáms við Conservatori de Música Isaac Albéniz í Girona. Þar lauk ég kennaraprófi í klassískum gítarleik árið 1986. Ég stundaði einnig einkatíma hjá F.Garrido í Barcelona og hef sótt meistaranámskeið hjá meðal annars Oscar Cáceres, David Russell og Manuel Barrueco.

Ég kenndi klassískan gítar um árabil við íslenska tónlistarskóla, meðal annars Tónlistarskóla Garðabæjar og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Samhliða kennslunni hef ég lengi unnið að útsetningum og gerð kennsluefnis fyrir klassískan gítar.

Árið 2000 stofnaði ég vefinn The Guitar School - Iceland, þar sem ég hef byggt upp umfangsmikið safn af nótum og kennsluefni fyrir klassískan gítar og gítarsamspil.

Ég býð nú einnig upp á einkakennslu í klassískum gítar í Hafnarfirði fyrir börn og fullorðna, bæði byrjendur og lengra komna.

Nánar um einkakennslu í klassískum gítar →

Menntun

Kennsla og tónlist

Önnur starfsreynsla

Ég lauk síðar B.Sc.- námi í upplýsingakerfum í Svíþjóð og starfaði um árabil við hugbúnaðargerð og upplýsingatækni.

Ég þróaði jafnframt nemenda-og skólaumsjónarkerfið School Archive, sem var notað af fjölmörgum íslenskum tónlistarskólum um áratugaskeið.

Verkefni

Hafðu samband

Sveinn Eyþórsson
📱Sími: 897 1202
📧 Netfang: sveinn@eythorsson.com